Meinvill og slúðrið

Slúður af netinu um tímasetningar sem upplýsingar berast frá Kína Okkar LID er 14 nóvember 2005

26 febrúar 2008

Ekkert slúður ennþá

Það er ekkert að frétta frá landinu mikla í austri (er það annars ekki í austri??). Það er hinsvegar kominn sá tími sem forsvarsmenn lofuðu að hlutirnir færu að ganga hraðar (eða lofuðu er kannski heldur sterkt til orða gripið). Talað var um að 2008 ættu þeir að fara að geta afgreitt allt að tveimur vikum í einu. Í síðasta mánuði voru það 8 dagar og það væri því ægilega gaman að sjá 15 núna. Eða þannig sko...

18 febrúar 2008

Enn um tímann

Sá nokkrar myndir af börnum sem væntanleg eru til landsins á næstu mánuðum. Alveg frábært og ég fékk gæsahúð um mig alla. En það fékk mig líka til að skoða tímann einu sinni enn. Hópur 16 var með Lid 14.nóvember 2005. Hópur 17 var með Lid 27.desember 2005. Þarna á milli er rétt um einn og hálfur mánuður. Það er ekki mikið. Það sem er hins vegar mikið er að á milli ferða eru hinsvegar um 7 mánuðir. Hópur 16 fór út í sept. 2007 en hópur 17 fer væntanlega í lok mars eða byrjun apríl. Þarna á milli eru nærri 7 mánuðir sem er skelfilega langur tími. Næsti hópur er með Lid í apríl 2006 og nú getur hver reiknað fyrir sig. Hinsvegar má svo sem reikna með því að janúar mánuður verði kannski fljótyfirfarinn því samkvæmt sögunni eru yfirleitt ekki svo margar umsóknir í þeim mánuði. Kannski feb líka. mars gæti verið þungur en ég hef heyrt að hann væri nokkuð stór umsóknarlega séð.

Erlendis er fólk að tala um Ethobia sem landið sem allir vilja fara til núna. Þar ku allt ganga hraðar fyrir sig og allir hlutir vera í lagi. Það eru hins vegar líkur á því að það verði ekki alltaf. Ef fjöldinn sækir um þar þá hlýtur eðli málsins samkvæmt að lengjast tíminn þar eins og annarstaðar. Það er vandlifað í þessum heimi, það er ekki hægt að segja annað.

04 febrúar 2008

Nýr linkur hér til vinstri

Hér til vinstri er kominn nýr linkur sem heitir umsóknir. Þar er staða hvers mánaðar á umsóknunum til Kína. CCAA er hætt að birta þessar upplýsingar þannig að mér datt í hug að safna þessu á einn stað þannig að auðvelt verði að skoða hvernig þetta gengur

Til hamingu hópur 17

Þið hljótið að vera inni þar sem CCAA er búið að uppfæra innra boxið sitt og þar segir að cutt off eða lokadagsetning sé 27.des 2005.


Til hamingju

01 febrúar 2008

jibbíka Jei

Ég held að það sé nokkuð öruggt að 27.des sé inni núna því æ fleiri umboð eru að tilkynna það sem lokadag eða alla vega að hann sé með!!!!!!!!!

Ég þori að vísu ekki að óska hópi 17 til hamingju ennþá en líkurnar eru MIKLU meiri heldur en minni... Nú fara gleðidagar í hönd

Vonandi senda þeir fararleyfin líka fyrir þá sem eru að bíða eftir þeim ;)