Lífsseigasta slúðrið loksins búið
CCAA er loksins endanlega fluttir. Þeir eru búnir að breyta heimilisfanginu á síðunni sinni. Erlendum umboðum ber þó ekki saman um hvort þeir séu byrjaðir að vinna á fullu aftur eða hvort þeir séu enn að koma sér fyrir. Það hlýtur að koma í ljós.
Slúðrið talar um þrjár dagsetningar:
Slúðrið talar um þrjár dagsetningar:
- 13 júlí sem er elsta og lífsseigasta slúðrið
- 20 júlí en eitt stórt umboð hefur látið skjólstæðinga sína vita að upplýsingar muni ná til þessa dags
- 27 júlí annað stórt umboð hefur gefið þá dagssetningu til sinna skjólstæðinga (ég VONA að þessi sé rétt ;) )
Annars rakst ég á yfirlit um slúðrið og hvað hefur reynst rétt og hvað rangt. Ætla að reyna að koma því inn seinna í dag því það er soldið skemmtilegt að sjá hvað hefur staðist og hvað ekki. Mér sýnist í fljótu bragði að meirihlutinn hafi ekki staðist... en ég reyni að koma því inn í dag...
<< Home