Meinvill og slúðrið

Slúður af netinu um tímasetningar sem upplýsingar berast frá Kína Okkar LID er 14 nóvember 2005

06 mars 2008

Hægt og hljótt

Þetta ætlar að mjakast áfram í hænuskrefum. Átta dagar núna og átta dagar síðast. Það er búið að yfirfæra okt 2006 í review herberginu en ekki hafa borist fregnir af því að þeir hafi komist lengra. Minni samt á að það virðist virka þannig að hver og einn klárar það sem hann á að fara yfir þannig að það getur verið að einstaka umboð fái fréttir um að það sé búið að yfirfara viðkomandi mánuð hjá þeim þó CCAA hafi ekki tilkynnt að búið sé formlega að fara yfir mánuðinn. Þeir tilkynna það ekki nema allt sem á hreinu varðandi þann mánuð.

En eitt er samt gleðilegt:
Það er búið að klára allar umsóknir frá árinu 2005