Meinvill og slúðrið

Slúður af netinu um tímasetningar sem upplýsingar berast frá Kína Okkar LID er 14 nóvember 2005

09 febrúar 2007

Ekkert nýtt slúður

Nei bara alls ekki neitt. RQ er farin í vinnuferð eitthvað út í rassgat og síðan fer hún að fara til Kína. Hún er búin að setja nokkra í stjórn á síðunni og það er allt lið sem er nokkuð þekkt úr kommentunum og spjallrásunum hennar. Einn meðal annars úr nóvember grúbbunni. Maður veit bara ekki hvort þeir koma til með að heyra eins mikið og hún. En það kemur í ljós. Það er búið að vera fullt af skemmtilegum umræðuefnum þarna á rásinni og ég er að spá í að segja frá því sem svona helst snýr að ferðunum meðan við bíðum eftir slúðri. Það er ekki hægt að hafa svona lítið að segja dag eftir dag ;)